Velkomin!

Þessi síða er tileinkuð sjóvarpsmanninum sívinsæla Gísla Marteini sem hefur brætt hjörtu okkar allra. Síðan er opnuð í tilefni þess að Aðdáendaklúbbur Gísla Marteins var stofnaður. Við munum gera okkar besta til að heiðra þennan frábæra mann. Njótið vel.
Í gærkvöldi, 15. maí, sá Gísli Marteinn um að kynna Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva fyrir Íslendinga. Formaður klúbbsins skellti upp úr öðru hverju við glettnar athugasemdir frá Gísla, og bjargaði þannig Eurovision kvöldinu. Takk fyrir það Gísli.
Komnar eru fjórar myndir af Gísla inn á myndasafnið, en okkur reynist erfitt að finna myndir af honum. Einnig sárvantar okkur ágrip af sögu hans. Ef einhver lumar á því biðjum við viðkomandi vinsamlegast að láta vefstjóra vita.
bravenet.com